Jón Helgason (andsvar) :
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. 11. þm. Reykn. fyrir þær ábendingar sem hún setti fram og aðvaranir sem ganga í sömu átt og kom fram í orðum okkar stjórnarandstæðinga sem höfum talað áður um þetta mál. En í orðum mínum lagði ég áherslu á að hér væri að mínu mati um meira heilbrigðismál en efnahagsmál að ræða og ég vil því taka undir það sem hv. 6. þm. Norðurl. e. sagði eða ábendingu hans um að málið yrði sent til umsagnar hv. heilbr.- og trn. til þess að fá álit hennar á málinu. Þar sem hv. 11. þm. Reykn. á sæti í efh.- og viðskn. sem væntanlega fær málið formlega til meðferðar, þá vildi ég beina þeirri ósk til hennar að hún mundi sjá um að efh.- og viðskn. leitaði umsagnar heilbr.- og trn. um málið.