Jón Helgason
(andsvar)
:
Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að ræða þetta mál efnislega en mér sýnist að hér sé á ferðinni frv. sem snertir mjög mikilvægan þátt umhverfismála. Og með tilliti til þingskapa þá kemur mér dálítið á óvart að á einhverju stigi skuli umhverfisnefnd ekkert koma að þessu máli og vil því spyrja að því hvort það væri ekki eðlilegt. Ég geri mér ekki grein fyrir því að fullu, e.t.v. er þetta af því að hér sé um að ræða lagabálk sem heyrir undir heilbr.- og trmrh., en mér finnst það hlyti að hafa verið eðlilegt að eitthvert samráð hefði verið haft við umhvn.