Eiturefni og hættuleg efni

160. fundur
Þriðjudaginn 20. apríl 1993, kl. 20:43:51 (7320)

     Jón Helgason (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Eins og ég sagði hefur umhvn. ekkert að þessu máli komið þannig að ég geri mér ekki grein fyrir því hversu einfalt eða flókið málið er, það hefur ekki verið skoðað. En þetta var aðeins vegna formsins sem ég kom með þessa ábendingu þar sem mér finnst málsmeðferð nokkuð óvanaleg.