Ingibjörg Pálmadóttir
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Það er langt frá því að ég ætli að tefja þetta mál enda talaði ég tæpa eina mínútu og ég vona að það tefji ekki málið þó ég tali í aðra mínútu nú. En ég er alveg hissa á því hvað hæstv. umhvrh. umhverfðist við það að ég spurði hæstv. heilbr.- og trrh. Ég bið bara afsökunar á því, hæstv. umhvrh., að ég skyldi ekki leita til þín og spyrja af hverju umhvrh. ( Forseti: Ekki persónuleg ávörp í salnum.) Ég bið afsökunar á því ef mér hefur orðið það á, en ég var að tala við hæstv. umhvrh. og ekkert sérstaklega persónulega að mér fannst. ( Forseti: Það var í 2. persónu.) En það sem ég var að tala um og hann sagði réttilega að ég bæri hag atvinnulífsins fyrir brjósti. Það er alveg hárrétt. ( Umhvrh.: Frystiiðnaðarins.) Ja, þú sagðir frystiiðnaðrins. Og ég ber hann fyrir brjósti, það er alveg rétt. En þetta kemur líka við kúabændur og ég ber þá líka fyrir brjósti. Og þetta kemur við millilandaskip og þetta kemur við ýmsa aðila. Og ég sagði það hér áðan að ég samþykki þetta mál. En ég vildi bara vekja athygli á því að þetta hefur í för með sér verulegan kostnaðarauka fyrir atvinnulífið.
Og nú ætlar hæstv. ráðherra að tefja málið enn og frekar.