Atvinnuleysistryggingar

160. fundur
Þriðjudaginn 20. apríl 1993, kl. 21:55:21 (7335)

     Svavar Gestsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Mikilvægt er að þannig sé haldið á málum að réttur þeirra sem fyrir eru verði ekki skertur og að fleiri komi inn, allir þeir sem eru atvinnulausir. En því miður er það þannig í frv. því sem hv. þm. Geir H. Haarde flytur núna að ekki eru allir þeir sem eru atvinnulausir teknir inn. Hann gengur því skemmra nú en hann gerði í frv. sínu fyrir nokkrum árum.