Ávana- og fíkniefni

160. fundur
Miðvikudaginn 21. apríl 1993, kl. 00:27:52 (7369)

     Frsm. allshn. (Sólveig Pétursdóttir) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nál. frá allshn. um frv. til laga um breyting á lögum um ávana- og fíkniefni en allir nefndarmenn undirrita þetta álit.
    Nefndin hefur fjallað um málið og mælir með samþykkt þess. Frv. er flutt samhliða frv. til laga um breyting á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, 338. mál, og vísast til álits nefndarinnar um það mál.