Tilkynning um utandagskrárumræðu

161. fundur
Miðvikudaginn 21. apríl 1993, kl. 13:36:00 (7385)

     Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
    Forseti vill geta þess áður en gengið er til dagskrár að strax að loknum atkvæðagreiðslum fer fram utandagskrárumræða skv. fyrri mgr. 50. gr. þingskapalaga að beiðni hv. 11. þm. Reykv. og er umræðuefnið útboð á rekstri Fríhafnarinnar í Keflavík.