Vegalög

161. fundur
Miðvikudaginn 21. apríl 1993, kl. 14:57:46 (7407)

     Jóhann Ársælsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Ég kem hér eingöngu til þess að þakka hæstv. ráðherra fyrir þessa yfirlýsingu. Ég tel að það sé mjög mikilvægt að hann skuli ætla að beita sér í þessu máli hvað varðar það að reikna upp aftur skuldir þessara fyrirtækja sem hann var að tala um því auðvitað tek ég undir með honum, það nær ekki nokkurri átt að ríkið sem er meirihlutaeigandi að svona rekstri skuli hafa látið hlutina danka með þeim hætti sem búið var að láta gera undanfarin ár og ég fagna þessu.