Stefán Guðmundsson
:
Virðulegi forseti. Við bætum okkur sjálfsagt ekki mikið á því að vera að eiga hér orðastað við nefndarmenn. Við erum búnir að skiptast á skoðunum úti í nefnd um þetta mál, en ég vil bara leiðrétta það sem kemur fram hjá hv. 2. þm. Norðurl. v., Pálma Jónssyni og formanni samgn., að auðvitað er það eitthvað sem hlýtur að liggja að baki því að meiri hluti samgn. gerir tillögu um að yfirvélstjórinn sé tekinn þarna út. Það hlýtur eitthvað að búa þar að baki. Ég hef margspurt um það í nefndinni en aldrei fengið svör við því hvað það er sem liggur að baki. Halda menn að það sé, eins og ég sagði hér áðan, einhver tilviljun að þetta atriði sé komið inn? Hverjir sömdu þetta frv.? Þetta er ekki tillaga frá einhverjum stjórnarandstæðingum. Þetta er frv. lagt fram af samgrh. og við hv. þm. Guðni Ágústsson erum að reyna að verja skoðanir hæstv. samgrh. sem hljóta hér að birtast. En við höfum ekki haft erindi sem erfiði að reyna að telja flokksbræðrum hans trú um það að ráðherrann hafi rétt fyrir sér í þessum efnum, því miður.
En hverjir voru það sem sömdu þetta frv.? Það tekur ekki langan tíma að rifja það upp. Í nefndinni áttu sæti Ragnhildur Hjaltadóttir skrifstofustjóri, sem var formaður nefndarinnar. Ásamt henni voru í nefndinni Einar Hermannsson, fulltrúi Sambands ísl. kaupskipaútgerðar, Helgi Laxdal, varaforseti Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, Jónas Haraldsson, skrifstofustjóri LÍÚ, og Magnús Jóhannesson siglingamálastjóri. Þetta eru þeir sem sömdu þetta frv. Halda menn að það hafi ekki eitthvað staðið á bak við það að höfundar þessa frv. hafi séð ástæðu til þess að bæta þessu hér inn? Auðvitað er það. Mönnum er það ljóst að þessi skip hafa tekið miklum breytingum á síðustu árum og það er mikið öryggisatriði að yfirvélstjóri sé þarna kallaður til ábyrgðar ásamt skipstjóra.