Menntamálaráðherra (Ólafur G. Einarsson) :
Hæstv. forseti. Það er út af fyrir sig gott mál ef Alþingi er reiðubúið að standa að eflingu íþróttastarfsins í landinu með því að auka stuðning við framkvæmdir á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra. Mér finnst hins vegar vera álitamál hvort skipa á enn eina nefndina til þess að fjalla um þessi mál. Íþróttanefnd ríkisins hefur starfað að ég held í rúmlega fimm áratugi og haft umsjón með Íþróttasjóði og á sl. ári skipaði ég sérstaka nefnd sjö manna til þess að endurskoða íþróttalögin.
Íþróttanefnd ríkisins starfar sem ráðgefandi nefnd fyrir menntmrh. og menntmrn. og stýrir Íþróttasjóði þó að minna fjármagn sé til skiptanna nú en áður. Endurskoðunarnefnd íþróttalaga sem ég nefndi áðan hefur lagt fram áfangaskýrslu og það verður unnið að því á næstunni að ganga frá drögum að frv. til íþróttalaga.
Eins og hv. 1. flm. tillögunnar tók fram urðu verulegar breytingar á högum Íþróttasjóðs með lögum um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga sem tóku gildi um áramótin 1989/1990. Sveitarfélögin tóku þá yfirbyggingu og rekstur íþróttamannvirkja en úr íþróttalögum var einungis felldur niður hluti af II. kafla laganna þar sem voru ákvæði um Íþróttasjóðinn og í staðinn kom ný grein sem orðast svona, með leyfi hæstv. forseta:
,,Bygging íþróttamannvirkja í þágu skóla og til almenningsnota er í verkahring sveitarfélaga. Sveitarstjórn veitir byggingarstyrki til íþróttafélaga og íþróttasamtaka eftir því sem ákveðið er í fjárhagsáætlun sveitarfélags.
Alþingi veitir árlega fé í sjóð sem nefnist Íþróttasjóður. Fé úr sjóðnum skal veita til byggingar íþróttamannvirkja á vegum félaga sem um getur í 2. mgr.`` --- þ.e. íþróttafélaga og íþróttasamtaka, ekki til sveitarfélaga. ,,Íþróttanefnd gerir tillögur til fjárveitinganefndar um skiptingu fjárins.``
Eins og þarna kemur fram veitir Alþingi árlega ákveðna fjárhæð til þess að styrkja byggingu íþróttamannvirkja á vegum íþróttafélaga. Þetta eru ekki háar fjárhæðir, það er ekki hægt að segja það. Sjóðurinn hefur árlega fengið 14--16 millj. kr. á síðstu þremur árum og það er ekki nema rétt um það bil helmingur umsækjenda sem hefur hlotið styrki úr Íþróttasjóði og það æðimisjafna, allt frá 150 þús. kr. upp í 1 millj. En þrátt fyrir að þarna sé ekki um háar fjárhæðir að ræða, þá hefur ráðuneytið fengið fjölmargar bendingar um að þær hafi leyst ýmsan vanda, komið að góðum notum og bætt aðstöðu til íþróttaiðkana, ekki síst hjá minni félögum og í dreifðari byggðum.
Með vísan til þessa sem ég hef hér sagt, þá hef ég efasemdir um að tilefni sé til að skipa sérstaka nefnd sem hafi þetta verkefni með höndum, að kanna hvernig best verði staðið að eflingu Íþróttasjóðs ríkisins. Íþróttanefnd ríkisins hefur m.a. þetta viðfangsefni. Íþróttalögin eru í endurskoðun og þar kemur þetta mál áreiðanlega mjög sterkt inn, hvernig megi efla Íþróttasjóðinn. En ég tel sjálfsagt að hv. menntmn. taki þetta mál til sérstakrar athugunar og ég efast ekkert um í sjálfu sér vilja þingmanna til þess að leggja sitt af mörkum til að Íþróttasjóður verði efldur.