Ólafur Þ. Þórðarson
(um þingsköp)
:
Hæstv. forseti. Ég hygg að hæstv. forseta sé fullljóst að samkvæmt þingsköpum fara umræður fram eftir ákveðnum greinum þingskapa. Auðvitað er hægt að taka ákvörðun um eins og þar stendur að annan veg sé staðið að þessu. Það er einnig ákveðin grein í þingsköpum sem fjallar um það og vænti ég að forseti sé svo vel lesin að ekki þurfi að fara út í að þylja hér númer á þessum greinum.
Ef forseti hyggst starfa á annan hátt en hinar hefðbundnu greinar segja fyrir um þá ber forseta að bera slíkt samkomulag upp undir atkvæði í þinginu. Svo einfalt er það mál. Þingið getur að sjálfsögðu tekið ákvörðun um að hér verði talað í hálftíma af hverjum þingflokki, klukkutíma, tíu mínútur eða hvað sem er og þetta held ég að allir viti nema hæstv. utanrrh. sem hefur ekki enn þá gert sér grein fyrir að það eru mjög góð þingsköp prentuð hér á Alþingi og það þarf aðeins að fara eftir þeim. Og til þess að fara eftir þeim þarf forsetinn að bera svona samkomulag undir þingið. Það er einföld atkvæðagreiðsla tekur sáralítinn tíma en þá er löglega að ákvörðuninni staðið.