Virðulegur forseti. Ég tel alveg ástæðu til þess að einhverjir þingvanari menn en ég er svari því sem kom fram í máli hv. þm. sem talaði hér á undan mér, hv. 6. þm. Vestf., hvort það gangi að gefa ráðherra með þessum lögum heimild til að setja reglugerðir við lög sem er búið að breyta núna. Ég tel reyndar að þó svo að menn fyndu flöt á því að það væri hægt, þá sé varla ástæða til þess að vera með svona lagasetningu í Alþingi. Hvers vegna kalla menn ekki þetta bara til baka núna, breyta þessu og hafa þetta þá í samræmi við það sem Alþingi er búið að gera nú þegar? Ég tel að það væri full ástæða til þess að nefndin skoðaði þetta betur. Þetta hefur einfaldlega ekki komið til umræðu í nefndinni og er fyrst að koma
í ljós núna við þessa umræðu.
Ég vil taka undir það sem hv. 6. þm. Vestf. var að segja hér um þær athugasemdir sem minni hluti nefndarinnar hefur verið að gera við framgang málsins og ég vil harma það að hv. formaður nefndarinnar sem gerði þó ágætar tilraunir til þess að koma málunum í eðlilegra horf skyldi ekki hafa erindi sem erfiði því að þá breytingu sem hann vildi hafa á þessu máli fékk hann ekki fram og fékk við það athugasemdir. Nú er heimild samgrh. til að setja reglugerðir samkvæmt lögum þessum þannig að það er í hans valdi að meta það hvort um verulegar breytingar er að ræða eða ég veit ekki hver annar ætti að gera það. Það er auðvitað hægt að gera við það athugasemdir, ég geri ráð fyrir því og sjálfsagt verður það gert ef menn telja að verið sé að fara öðruvísi að en menn hafa gert ráð fyrir í upphafi, en ég tel að þessi reglugerðarbandormur sem hér er til umfjöllunar sé Alþingi ekki til mikils sóma og lagasetningu hér á hv. Alþingi. Það hefur auðvitað komið hér fram áður.
Ég vil svo draga athyglina að því sem ég hef gert áður í umræðu um þetta mál að m.a. erum við hér að samþykkja að ríkisborgarar á EES-svæðinu geti skráð hér skip sem hafa fengið haffæriskírteini erlendis og það haffæriskírteini verði látið gilda á Íslandi. Þetta mun auðvitað leiða það af sér að við munum ekki geta haft þær auknu kröfur sem um er að ræða hér í sambandi við öryggi og eftirlit með skipum sem við höfum haldið úti fram að þessu og ég tel að það sé mjög miður. Og því miður erum við að binda hendur okkar á ýmsan máta í þessum EES-samningum sem mun hafa það í för með sér að frumkvæði okkar í ýmsum málum mun minnka. En ég vil nú hvetja formann nefndarinnar til að velta því alvarlega fyrir sér hvort það eigi ekki að skoða þetta mál og a.m.k. lagfæra það sem hér var tínt til áðan vegna þess að í raun og veru er málið úrelt. Það var sjálfsagt gert ráð fyrir því hér í upphafi að það yrði búið að afgreiða málið áður en lögin breyttust sem hér er um að ræða, en nú hefur röðin orðið önnur og þá held ég að sé full ástæða til þess að taka mark á því og lagfæra þetta.