Frsm. meiri hluta samgn. (Pálmi Jónsson)
:
Virðulegi forseti. Vegna þeirra tilmæla sem fram komu í máli hv. 3. þm. Vesturl. vil ég taka það fram að nefndin hefur athugað þetta frv. mjög gaumgæfilega að ég tel og lagt í það mikla vinnu. Þær breytingar sem gerðar hafa verið á lögum frá því að nefndin lauk sinni vinnu, sem var í marsmánuði, hafa ekki áhrif á það að raska í neinu þessu lagafrv. Fremur er það að þeim lögum sem breytt hefur verið, t.d. lög um fjarskipti, lög um eftirlit með skipum, lög um leiðsögu skipa hafa færst í þá átt að vera að ýmsu leyti meira í samræmi við það sem íslensk lög þurfa að vera til þess að þegar og ef samningur um Evrópska efnahagssvæðið tekur gildi þannig að það hefur enga hernaðarlega þýðingu að fara að taka þetta upp til breytinga af þeim orsökum.
Eins og ég sagði í fyrri ræðu minni, þá fórum við mjög gaumgæfilega yfir öll efnisatriði sem þarf að setja reglugerð um. Margt af því er þess efnis að það kemur lítt við íslenska hagsmuni, en annað kemur þannig við okkar hagsmuni þannig að það var ekki talið af umsagnaraðilum né í vinnu okkar í nefndinni að það kæmi nokkurs staðar í bága við það sem kalla má okkar hagsmuni. Því sé ég enga ástæðu til þess að fara að taka málið upp að nýju eða leggja í þetta meiri vinnu. Sú vinna sem við höfum lagt af mörkum í því nefndarstarfi þar sem við höfum fjallað um þetta efni er ærin og ég legg til enn fyrir hönd meiri hluta nefndarinnar að frv. verði samþykkt eins og það liggur fyrir með þeim breytingum sem meiri hluti nefndarinnar flytur.