Lagaákvæði er varða samgöngumál

164. fundur
Miðvikudaginn 28. apríl 1993, kl. 19:41:57 (7586)


     Frsm. minni hluta samgn. (Jóna Valgerður Kristjánsdóttir) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Þá sýnist mér að þetta geti ekki verið rétt sem hér stendur í því frv. til laga um eftirlit með skipum sem við samþykktum núna fyrir klukkutíma. Þar segir um gildistöku laganna, 35. gr.:
    ,,Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1993. Jafnframt falla úr gildi lög nr. 51 30. mars 1987.`` Það eru þessi lög sem verið er að breyta þessari grein við. Eigum við þá von á því að fá á næstunni frv. aftur þar sem þessu verður breytt við núgildandi lög?