Menntamálaráðherra (Ólafur G. Einarsson)
:
Hæstv. forseti. Þegar Reykjavíkurborg skilaði gamla Stýrimannaskólanum árið 1989 var húsið í fremur lélegu ástandi og hafði lítt verið haldið við. Menntmrn. gerði þá þegar við afhendingu athugasemdir við ástand hússins og óskaði eftir því við Reykjavíkurborg að borgin greiddi kostnað af viðhaldi þess. Það voru gerðar þá minni háttar lagfæringar á íbúð í risi hússins en leigutaki að þeirri íbúð tók að sér að annast eftirlit með húsinu og svo er enn. Leigutakinn lítur eftir því.
Á sínum tíma beindist athugun nefndar um framtíðarnýtingu gamla Stýrimannaskólans m.a. að því að húseignin yrði áfram notuð af Reykjavíkurborg. Það var hins vegar horfið frá þeim hugmyndum. Það fengust á síðasta ári á fjárlögum 3 millj. kr. til viðhaldsframkvæmda. Samningar um þátttöku Reykjavíkurborgar í viðhaldskostnaði eru nú á lokastigi og viðhaldsviðgerðir raunar þegar hafnar utanhúss.
Það kemur til greina að ráðuneytið ráðstafi húsinu til einhverrar stofnunar á vegum ráðuneytisins. Nokkrar hugmyndir hafa komið upp. Það kemur einnig til greina samningur milli Reykjavíkurborgar og menntmrn. um að Reykjavíkurborg fái afnot hússins og viðræður hafa farið fram alveg nýlega um það efni. Það liggur hins vegar ekki fyrir niðurstaða og ekki gert ráð fyrir að ákvörðun verði tekin fyrr en viðgerð utan húss verði lokið en sú viðgerð er þegar hafin eins og ég sagði áðan.
Ég get ekki farið frekar út í það hvaða hugmyndir eru þarna uppi. Ef Reykjavíkurborg fær húsið til umráða þá verður það borgarinnar að koma með hugmyndir og fá samþykki ráðuneytisins fyrir því en þarna hafa komið fram hugmyndir að íbúasamtökin, eins og hér hefur áður komið fram, fái húsið til afnota. Þarna hefur einnig komið til greina skólahald og svo minjasafn Stýrimannaskólans eins og við nefndum áðan. Þetta er sem sagt allt í undirbúningi og á viðræðustigi við Reykjavíkurborg.