Umhverfisgjald

166. fundur
Fimmtudaginn 29. apríl 1993, kl. 15:38:33 (7671)

     Árni M. Mathiesen (andsvar) :
    Herra forseti. Það er einmitt vegna þeirra vangaveltna sem hv. þm. var með hér rétt á undan mér sem lagt er til í skýrslu umhvrh. eða mótun stefnu í umhverfismálum, bls. 15 gr. 80, að hafin verið gagngerð endurskoðun skattalaga og opinberra gjalda til að laga neyslu, atvinnulíf og hagkerfi að kröfum sjálfbærrar þróunar.