Páll Pétursson :
Herra forseti. Örfá orð. Ég er út af fyrir sig ánægður með að frávtill. skyldi koma svona illa við hv. 3. þm. Reykv. Það þykir mér að vissu leyti betra. Hér er ekki einungis um tæknilegan gjörning að ræða
við afgreiðslu þessa frv. Alþingi er að leggja lokahönd á samninginn um Evrópskt efnahagssvæði fyrir sitt leyti og það er verið að ganga frá málinu, ekki bara lítilvægum, tæknilegum breytingum eins og það að strika Sviss út úr textanum. Þetta er lokaafgreiðsla málsins sem fer fram hér á morgun eða í þessari atrennu og okkur þótti eðlilegt að reyna eina ferðina enn að bjarga því sem bjargað yrði og koma málinu til ríkisstjórnarinnar þannig að hún gæti hugsað sig um og reynt að gera aðeins betur.
Mér er kunnugt um að í haust var felld tillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu. Henni var m.a. hafnað á þeirri forsendu að ekki væri nægur tími til að framkvæma hana. Á nýju ári ætti að gefast tími til þess að láta ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu fara fram þar sem krafan um hana er enn við lýði, hún verður ekki kæfð til eilífðarnóns með einni ákvörðun meiri hluta Alþingis.
Nokkur orð vegna hinnar stuttu ræðu hæstv. utanrrh. Það er laukrétt að girðingarvinnan er eftir. Hún hefur lent í útideyfu, þar sem torvelt er reisa þær girðingar sem eitthvert hald er í. Þetta hefur komið berlega í ljós við þær tilraunir eða tilhlaup sem gerð hafa verið til þess að koma þeim upp. Þær girðingahugmyndir sem menn hafa verið að sýsla með og prófa á sjálfum sér og sínum félögum í stjórnarflokkunum eru allar gallaðar og koma okkur meira og minna í koll. Sumar brjóta eignarréttarákvæði stjórnarskrár, aðrar gera landið verðlítið ef ekki má selja það nema á ákaflega þröngum markaði og þannig mætti lengi telja.
Mér finnst þessi umræða hafa tekið talsvert miklum stakkaskiptum hjá hæstv. utanrrh. Hvar er fögnuðurinn og sigurgleðin frá því í haust? Hann kemur hér skömmustulegur og lætur fara sem minnst fyrir sér. Það er auðvitað vegna þess að hann fyrirverður sig fyrir verk sín og það segi ég honum til málsbóta því það er gott að hann kunni að skammast sín.