Virðulegi forseti. Góðir tilheyrendur. Hér í síðustu ræðu hv. þm. Árna M. Mathiesens heyrðum við nýja hagfræðikenningu. Hún var afar athyglisverð og eftirminnileg og ég vænti þess að Alþingi Íslendinga og þjóðin öll festi sér hana í minni. Hagfræðikenningin felst í því að til þess að auka sparnað í þjóðfélaginu þurfi að afnema velferðarkerfið. Ég hef satt að segja ekki áður heyrt Sjálfstfl. orða kenningu sína og inntak efnahagsstefnu með jafnskýrum hætti og í þetta skiptið. Þakka ég þingmanninum fyrir það.
Virðulegi forseti og góðir tilheyrendur. Við höfum búið í þjóðfélagi á Íslandi þar sem allir höfðu vinnu. Svo kom ríkisstjórn Davíðs Oddssonar og nú er atvinnuleysi hjá 7--8 þús. einstaklingum á Íslandi. En þetta þarf ekki að vera svona. Með róttækri jafnaðarstefnu og með bjartsýni er hægt að skapa þúsundir nýrra atvinnutækifæra.
Við höfum búið í þjóðfélagi þar sem fylgt hefur verið tilteknum lýðræðislegum leikreglum. Svo kom ríkisstjórn Davíðs Oddssonar og nú er talað um ritskoðunarþjóðfélag. Klíkubræðurnir eru að taka völdin á fjölmiðlunum og einkavinavæðingin er í algleymingi. En þetta þarf ekki að vera svona og Sjálfstfl. er kominn niður í 28% í skoðanakönnunum og mun fara neðar haldi svo fram sem horfir.
Við höfum búið í þjóðfélagi þar sem stjórnvöld hafa viljað stuðla að byggðastefnu. Svo kom ríkisstjórn Davíðs Oddssonar sem er á móti byggðastefnu en rekur óbyggðastefnu og sendir frá sér landakort þar sem stórir landshlutar eru málaðir í líklitunum. En þetta þarf ekki að vera svona. Forsenda samstöðu Íslendinga er jákvæð afstaða til byggðanna.
Við höfum búið við samstöðu um uppbyggingu skólakerfisins á Íslandi. Svo kom Ólafur G. Einarsson og það voru lögð á skólagjöld, námslánakerfið var skorið niður og fækkað tímum í grunnskólunum. En þetta þarf ekki að vera svona því að forsenda framfara er vissulega gott menntakerfi og aukið fjármagn í rannsókna- og þróunarstarfsemi.
Við höfum búið í þjóðfélagi þar sem allir börðust fyrir bættri þjónustu í heilbrigðismálum. Svo kom Sighvatur Björgvinsson og heilbrigðisþjónustan er í uppnámi. En þetta þarf ekki að vera svona. Það eru til peningar til þess að hafa hér gott heilbrigðiskerfi.
Við höfum búið í þjóðfélagi þar sem ríkisstjórnir hafa tamið sér góð samskipti við aðila vinnumarkaðarins. Svo kom Jón Baldvin Hannibalsson sem kýs að hreyta fúkyrðum í verkalýðsforustuna og kalla hana gapuxa í staðinn fyrir að semja við hana. En þetta þarf ekki að vera svona. Forsenda betra þjóðfélags er róttæk jafnaðarstefna og gott samstarf við verkalýðshreyfinguna.
Þegar ég segi, virðulegur forseti, að það séu til peningar þá bendi ég á 2--2,5 milljarða kr. í hátekjuskatt og fjármagnstekjuskatt. Ég bendi á 5--10 milljarða kr. í skatta af neðanjarðarhagkerfinu og ég bendi á tillögur Alþfl. frá 1985 sem gerðu ráð fyrir 10 milljarða kr. tekjum á einu ári af svokölluðum stighækkandi eignarskatti. Peningarnir eru til en viljann vantar.
Við höfum búið í þjóðfélagi, virðulegi forseti, þar sem rekstur sjávarútvegsins og framkvæmd fiskveiðistefnu hefur verið grunnþáttur og kjarni efnahagslífsins. Svo kom ríkisstjórn Sjálfstfl. og Alþfl. og fyrirtækin nær öll í sjávarútvegi eru rekin með stórfelldu tapi en Seðlabankinn sýnir meiri gróða en nokkru sinni fyrr. En þetta þarf ekki að vera svona. Þess vegna höfum við alþýðubandalagsmenn lagt til að vinna við fiskveiðistefnuna verði tekin af ríkisstjórninni og hún fari fram hér á Alþingi. Ríkisstjórnin hefur hins vegar ákveðið að framlengja hið ónýta kvótakerfi áfram og ríkisstjórn sem hefur ekki fiskveiðistefnu á Íslandi á að fara frá.
Við höfum, virðulegur forseti, búið í þjóðfélagi þar sem almenn samstaða ríkti um að húsnæðiskerfið ætti að vera ópólitískt. Svo kom Jóhanna og gerir nú tillögu á Alþingi um að félmrh. annist í raun úthlutun húsnæðislána. Vissulega þarf þetta ekki að vera svona. Og svona mætti lengi telja. Eftir lengsta þing sögunnar liggja fyrir átta milljarðar kr. í auknum álögum, sköttum og gjöldum á almenning í landinu og ákvörðun um aðild að Evrópsku efnahagssvæði og að hernaðararmi Evrópubandalagsins, þ.e. Vestur-Evrópubandalaginu. Þar með er þjóðin bundin í stað þess að ganga óháð og frjáls til þess verks að byggja upp nýtt alþjóðlegt öryggis- og friðarkerfi þegar NATO hefur verið lagt niður og þegar herstöðvunum hefur verið lokað.
Virðulegi forseti. Fyrir nokkrum dögum þegar ríkisstjórnin varð tveggja ára birtist skoðanakönnun sem sýndi að ríkisstjórn Davíðs Oddssonar er óvinsælasta tveggja ára barn sögunnar. Davíð Oddsson kennir málfrelsinu um og talar um róg og talar um gróusögur. Ólafur G. Einarsson segir: Þetta er í lagi, þetta gleymist.
En, góðir tilheyrendur, þetta má ekki gleymast. Einkavinavæðingin, klíkuskapurinn, spillingin, atvinnuleysið mun ekki gleymast. Eftir ár má gefa ríkisstjórninni nýja afmælisgjöf upp úr kjörkössunum en ekki aðeins úr skoðanakönnunum. Sveitarstjórnarkosningarnar 1994 verða uppgjör þjóðarinnar við einkavinavæðinguna, sú kosningabarátta verður pólitísk kjarabarátta. --- Ég þakka þeim sem hlýddu.