Steingrímur J. Sigfússon (andsvar) :
Hæstv. forseti. Ég tek ræðu hv. þm., sem er svo vítt sem ég veit eiginlega eini stjórnarliðinn, fyrir utan frsm., sem hafa talað hér í málinu a.m.k. í þessari umræðu, fyrst og fremst sem heldur vandræðalega málsvörn manna sem eru með vonda samvisku. Það er auðvitað alveg ljóst að þetta frv. hæstv. félmrh. er argasta miðstýringarfrv. Það er verið að draga þarna verulega völdin undan þingkjörinni stjórn og fella niður úr lagatextanum ákveðna sjálfstæðisskírskotun á þessari stofnun og færa þau verkefni inn í ráðuneytið. Þetta er argasta miðstýringarfrv. og ég skil vel að einstöku þingmenn Sjálfstfl. séu heldur vandræðalegir og komi hér og reyni svolítið að klóra í bakkann. Þetta sé nú ekki svo slæmt þrátt fyrir allt því stjórnin eigi að ráða ýmsu og þarna sé nú 4. gr. og þar sé það upp talið.
En ekki verður horft fram hjá hinu að félmrh. er að draga völd undir sig eða ráðuneytið, í stórum stíl. Þetta stefnir í átt til miðstýringar, frá valddreifingu, og ekki er nokkur leið að horfa fram hjá því að hin þingkjörna húsnæðismálastjórn verður í afar sérkennilegri stöðu. Verandi þingkjörin og eiga þar af leiðandi að hafa visst sjálfstæði, samkvæmt öllum stjórnsýsluvenjum hér, en vera svo sett undir félmrh., sem ráðgefandi apparat, og taka við þeim verkefnum sem ráðherra þóknast að afhenda stjórninni. Það er engin stjórnskipulega sjálfstæð staða sem slík þingkjörin stjórn hefur þó að henni séu afhent einhver tiltekin verkefni aftar í frv. Það er ekki svo. Hún fær auðvitað að ákveða bréfhausinn og eitthvað fleira fyrir Húsnæðisstofnun, en það er félmrh. sem er að draga til sín hin raunverulegu völd og auðvitað líður hv. þm. Sjálfstfl. illa þegar þeir eru að setja kíkinn fyrir blinda augað og styðja slíkan gjörning.