Menntamálaráðherra (Ólafur G. Einarsson) :
Hæstv. forseti. Það er spurt hvað líði framkvæmd þál. um íþróttir, æskulýðs- og tómstundastarfsemi frá 11. maí 1988. Alþingi ályktaði þá að fela ríkisstjórninni að láta kanna áhrif og mikilvægi íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfsemi og leitað yrði samstarfs við íþróttahreyfinguna um mótun íþróttastefnu til ársins 2000.
Þann 23. sept. 1988 skipaði þáv. menntmrh., Birgir Ísl. Gunnarsson, nefnd til að vinna að þessu máli. Þeirri nefnd gafst ekki ráðrúm til þess vegna stjórnarskiptanna haustið 1988 þar sem nýr menntmrh., Svavar Gestsson, leysti þá nefnd frá störfum þann 3. okt. Ráðherrann óskaði þá eftir tilnefningum frá stærstu æskulýðs- og íþróttasamtökum landsins og Sambandi ísl. sveitarfélaga í nefnd sem skyldi vinna að endurskoðun þeirra þátta æskulýðsmála sem menntmrn. lætur sig varða, endurskoða gildandi lög um æskulýðsmál og kanna áhrif og mikilvægi íþrótta, æskulýðs- og tómstundastarfsemi. Jafnframt skyldi nefndin gera tillögu að stefnumótun í íþrótta-, æskulýðs- og tómstundamálum fram til ársins 2000.
Þessi nýja nefnd skilaði viðamikilli tillögu að íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastefnu til ársins 2000 þann 22. apríl 1990. Sú könnun á áhrifum og mikilvægi íþrótta og æskulýðs- og tómstundastarfsemi sem Alþingi ályktaði að fela ríkisstjórninni að láta gera var ekki gerð, en í nefndarálitinu kom fram að nauðsyn var talin á því að slík könnun yrði gerð. Þegar ég kom í menntmrn. lagði ég áherslu á að samspil þessara og fleiri þátta í lífi ungs fólks yrði tekið til sérstakrar athugunar.
Haustið 1991 var viðamikil rannsókn á högum ungs fólks undirbúin á vegum Rannsóknastofnunar uppeldis- og menntamála, m.a. með stuðningi menntmrn., dómsmrn., Reykjavíkurborgar og Byggðastofnunar. Töluverður hluti þeirrar könnunar var helgaður áhrifum íþrótta- og tómstundastarfs á aðra þætti í lífi ungs fólks. Könnunin var lögð fyrir nær alla skólanemendur á aldrinum 13--20 ára vorið 1992. Þegar hefur verið unnið úr ýmsum þáttum þessarar viðamiklu rannsóknar og er sérstakrar skýrslu um áhrif íþrótta- og tómstundastarfs á líðan og lífshætti ungs fólks að vænta á næstu vikum.
Þá vil ég geta þess að þann 15. maí nk. verður haldið málþing á vegum íþróttanefndar ríkisins og menntmrn. um gildi íþrótta þar sem kynntar verða nokkrar niðurstöður umræddrar rannsóknar. Við mótun framtíðarstefnu í þessum málaflokkum verður m.a. byggt á niðurstöðum umræddrar rannsóknar og fyrrnefndri tillögu að íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastefnu til ársins 2000.