Veiting ríkisborgararéttar

172. fundur
Fimmtudaginn 06. maí 1993, kl. 14:24:56 (8017)

     Frsm. allshn. (Sólveig Pétursdóttir) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nál. frá allshn. á þskj. 1071 um frv. til laga um veitingu ríkisborgararéttar.
    Nefndin hefur fjallað um frv. sem er hið síðara um veitingu ríkisborgararéttar á þessu löggjafarþingi. Afgreiðsla málsins í nefndinni var með hefðbundnu sniði. Formaður og einn nefndarmanna, hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson, fóru yfir allar umsóknir til að kanna hvort þær uppfyltu þau skilyrði sem allshn. hefur sett fyrir veitingu ríkisfangs, sbr. þskj. 910 frá 112. löggjafarþingi. Farið var yfir nýjar umsóknir og umsóknir er hlutu ekki afgreiðslu á haustþingi.
    Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt með þeirri breytingu sem gerð er tillaga um á sérstöku þskj. Það eru allir nefndarmenn sem undirrita nál.