Evrópusamningar um fullnustu refsidóma

172. fundur
Fimmtudaginn 06. maí 1993, kl. 14:38:54 (8022)

     Frsm. utanrmn. (Björn Bjarnason) :
    Frú forseti. Ég mæli fyrir áliti utanrmn. á þskj. 1100 um till. til þál. um fullgildingu Evrópusamninga um viðurkenningu á fullnustu refsidóma. Nefndin hefur fjallað um tillöguna og mælir með samþykkt hennar. Undir álitið rita allir nefndarmenn.