Framhaldsskólar

172. fundur
Fimmtudaginn 06. maí 1993, kl. 16:51:30 (8038)

     Stefán Guðmundsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Svavari Gestssyni fyrir góð orð. Ég veit að hann hefur skilning á þessu máli. Hann hefur talað þannig oftar en einu sinni að ég skil hann og skoðanir okkar fara býsna vel saman í þessu máli. En um það að nefndin komi saman verð ég að segja að ég er bjartsýnismaður í eðli mínu en ég trúi samt ekki á kraftaverk í þessum efnum. Ég veit að það er annað og meira sem býr hér að baki, að þessi tillaga hefur ekki hlotið afgreiðslu í menntmn. Ég verð nú að segja það að ég trúi því ekki, hv. þm. Svavar Gestsson, að kraftaverk gerist í þessu efni.