Menningarsjóður

173. fundur
Fimmtudaginn 06. maí 1993, kl. 21:21:52 (8091)

     Frsm. meiri hluta menntmn. (Björn Bjarnason) :
    Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. meiri hluta menntmn. á þskj. 1093 um frv. til laga um Menningarsjóð. Þar segir með leyfi forseta:
    ,,Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fékk um það umsagnir frá sagnfræðiskor, heimspekiskor, íslenskuskor og bókmenntafræði- og málvísindaskor heimspekideildar Háskóla Íslands, Bandalagi ísl. listamanna, Rithöfundasambandi Íslands, Félagi ísl. bókaútgefenda, Félagi ísl. fræða, rektor Háskóla Íslands og Hagþenki, félagi höfunda fræðirita og kennslugagna.
    Meiri hluti nefndarinnar mælir með samþykki frv. með breytingum sem flutt er tillaga um á sérstöku þskj., þ.e. þskj. 1094. Breytingar meiri hlutans eru tvíþættar:
    Í fyrsta lagi er lögð til sú breyting að stjórn Menningarsjóðs skuli kosin hlutfallskosningu á Alþingi eftir hverjar alþingiskosningar í stað þess að vera skipuð af ráðherra eins og lagt er til í frv.
    Í öðru lagi er gerð sú breyting að 4. gr. frv. er felld brott og efni hennar fellt inn í 1. og 2. gr. frv.
    Ólafur Þ. Þórðarson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.``
    Undir þetta álit rita 4. maí Sigríður A. Þórðardóttir, Rannveig Guðmundsdóttir, Björn Bjarnason, Tómas Ingi Olrich og Árni Johnsen.