Ólafur Þ. Þórðarson
:
Herra forseti. Mér þykir út af fyrir sig vænt um að hæstv. menntmrh. vill ekki að eigur Menningarsjóðs, þess sem var, renni í ríkissjóð, heldur verði notaðar áfram til að styrkja menningarstarfsemi í landinu. En svona mega menn einfaldlega ekki vinna á Alþingi Íslendinga. Við megum ekki taka úrelt ákvæði úr lögum og setja þau inn í ný lög. Það er út af fyrir sig hægt að fara í lagasafnið og finna þar eitt og annað sem er orðið úrelt og það er hægt að una því þó að þingið hafi ekki alltaf fylgst með að taka slíka hluti út. Það verður margt úrelt í tímans rás. En það er náttúrlega ekki boðlegt að þegar maður, sem er jafnmikið af guði gefið og hv. 3. þm. Reykv., lætur sig hafa það að tala hér fyrir frv. þar sem lagt er til að skattur af skuggamyndasýningum verði tekjulind til að standa að bókaútgáfu.
Nú er mér ljóst að hv. 3. þm. Reykv. er að gera þetta af greiðasemi við formann nefndarinnar sem er farinn til ( Gripið fram í: Færeyja.) Færeyja og ég er ekkert að agnúast út í það þó að hún hafi þegið það boð. En auðvitað áttu menn að sjá sóma sinn í því og skoða þetta mál betur. Ég er ekki viss um að hv. 3. þm. Reykv. vilji að það verði aðalfrétt sjónvarpsins á morgun að búið sé að taka ákvörðun um það að skattur af skuggamyndasýningum eigi að fara í þetta verkefni. Ég er ekki viss um að hann vilji hafa þetta sem aðalfrétt. Og hvers vegna er hann að gera sjálfan sig hlægilegan og þingið með því að gera þetta? Af hverju hægja menn ekki örlítið á? Hv. 3. þm. Reykv. hefur unnið mjög vel í nefndum, mjög oft. Hv. þm. er ákaflega vel ljóst að þetta frv. er einfaldlega ekki unnið. Það þarf að fara yfir þetta. Ég vil alls ekki bera það á hæstv. menntmrh. að hann hafi ekki viljað vinna vel og rétta fram sáttarhönd í þeim efnum að láta flytja þetta frv. Þetta er ekki unnið af hæstv. ráðherra. Þetta er unnið af einhverjum starfsmönnum. En starfsmennirnir styttu sér leið að markinu. Þeir tíndu bara upp úr gömlu lögunum það sem þeim datt í hug og settu þarna inn.
Ég hefði eindregið óskað eftir því að það næðist samkomulag um að hægja á afgreiðslu þessa máls ef hægt væri að ná slíku samkomulagi og það yrði skoðað betur því að hv. 3. þm. Reykv. er það hreinlega ekki gerandi að láta samþykkja svona hluti. Það gengur bara ekki. Og miðað við það að ég efa ekki að hann á eftir að sitja lengi á Alþingi Íslendinga og á máski eftir að verða menntmrh., þá er ekkert skemmtilegt að láta nudda sér upp úr því seinna meir. Þetta frv. er flutt í góðri trú, góðum tilgangi og allt það, en í gífurlegum önnum þingsins að undanförnu hefur einfaldlega ekki gefist nægur tími til að vinna málið eðlilega.