Rammasamningur Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar

174. fundur
Föstudaginn 07. maí 1993, kl. 10:07:22 (8131)

     Frsm. utanrmn. (Björn Bjarnason) :
    Frú forseti. Ég geri grein fyrir áliti utanrmn. á þskj. 1114 um till. til þál. um fullgildingu rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar.
    Nefndin fjallaði um tillöguna og fékk á sinn fund til viðræðna um efni hennar Jón Gunnar Ottósson, skrifstofustjóra í umhvrn., og Þóri Ibsen, deildarsérfræðing í umhvrn. Þá barst nefndinni umsögn um tillöguna frá umhvn. og gerir nefndin ekki athugasemd við samþykkt hennar.
    Utanrmn. mælir einróma með samþykkt tillögunnar.