Tekjuskattur og eignarskattur

174. fundur
Föstudaginn 07. maí 1993, kl. 10:17:36 (8137)

     Frsm. efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nál. um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum.
    Nefndin hefur fjallað um þetta mál og leggur til að það verði samþykkt óbreytt.