Fræðslustörf um gigtsjúkdóma

174. fundur
Föstudaginn 07. maí 1993, kl. 10:40:12 (8147)

     Frsm. heilbr.- og trn. (Sigbjörn Gunnarsson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir áliti heilbr.- og trn. um till. til þál. um rannsóknar-, forvarna- og fræðslustörf um gigtsjúkdóma.
    ,,Nefndin hefur fjallað um málið og bárust henni umsagnir frá Félagi íslenskra sjúkraþjálfara, Gigtarfélagi Íslands, Iðjuþjálfafélagi Íslands, Kiropraktorafélagi Íslands, Landlækni, Læknafélagi Íslands og Manneldisráði Íslands.
    Nefndin mælir með samþykkt tillögunnar.``