Steingrímur J. Sigfússon
:
Hæstv. forseti. Í framhaldi af orðaskiptum hér á fyrri fundi fyrir hádegið vil ég eindregið inna hæstv. forseta eftir því hvenær 35. mál á þessari dagskrá, frv. til laga um framleiðslu og sölu á búvörum, þ.e. 504. mál þingsins, komi hér fyrir. Hæstv. forseti hafði um það góð orð að hann mundi svara því síðar á þeim fundi eða í dag hvenær þetta mál kæmi fyrir. Það var eindregið óskað eftir því af hv. formanni landbn. og stutt af fleiri þingmönnum sem hér komu upp að þetta mál yrði tekið fyrir og fengi forgang og allri óvissu um meðferð þess yrði eytt hér á þinginu. Ég vona að hæstv. forseti geti svarað okkur því að þetta mál verði tekið fyrir, ef ekki nú þegar þá a.m.k. sem fyrst, og fái hér meðferð og afgreiðslu.