Vegáætlun 1993--1996

175. fundur
Föstudaginn 07. maí 1993, kl. 15:26:29 (8201)

     Jóhann Ársælsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég ætla að vona að mér hafi ekki orðið á einhver mismæli. Ég var fyrst og fremst að gagnrýna hér áðan þetta stóra verkefni ríkisstjórnarinnar sem hún kallaði svo, átak í atvinnumálum, en ekki skilgreininguna á stórverkefnunum. Þar hafa menn mismunandi skoðanir og ég get vel skilið að þar séu ekki allir sammála um hvernig á að taka á hlutunum. Ég hef aftur á móti sagt og endurtek það hér að ég hef ekki gert athugasemdir við þessa nýju skilgreiningu og vil bara að það sé alveg skýrt.