Hjörleifur Guttormsson
(um þingsköp)
:
Virðulegur forseti. Mér þykir sýnt að hv. 5. þm. Austurl. hafi hvíslað því í eyra forseta nú að um 20. mál á dagskrá muni verða mjög mikil umræða og forseti hafi dregið þá ( Gripið fram í: Gunnlaugur, hlustaðu.) Að hv. 5. þm. Austurl. hafi hvíslað því í eyru forseta að um þetta 20. mál á dagskránni muni verða mjög mikil umræða og forseti dregið þá ályktun --- ég markaði það af orðum hæstv. forseta. Nú er það svo að sá er munur á málum þessum tveimur . . . ( Forseti: Má ég biðja hv. þm. að hafa hljóð í hliðarsal?) Virðulegur forseti. Má ég óska eftir því að það sé lokað á þetta umræðuherbergi, hliðarherbergi? Sá er munur á málum þessum að um annað liggja fyrir tvö nefndarálit, þar af frávísunartillaga varðandi fyrra málið á nefndaráliti. Um hitt málið stendur þannig á að því var vísað til allsherjarnefndar þingsins eftir nokkra umræðu hér á sínum tíma, það varð niðurstaðan. Allshn. vísaði málinu til efnislegrar umfjöllunar í umhvn. þingsins og það mál fékk þar ítarlega meðferð og umræðu. Síðan var send álitsgerð, umsögn frá umhvn. um þetta 20. dagskrármál til allshn. eins og allshn. hafði óskað eftir. Undir þessa álitsgerð rituðu allir fulltrúar í umhvn. þingsins. Fremstur í flokki og sá sem undirritaði bréfið --- virðulegur forseti, þetta er nú orðið erfitt um ágengnina gagnvart hæstv. forseta. Þetta er satt að segja orðið dálítið erfitt fyrir forseta að stýra hér fundi og hlýða á mál þegar jafnvel geistlegir menn gerast svo nærgöngulir sem raun ber vitni. --- Þessi álitsgerð frá umhvn. fór með bréfi undirrituðu af hv. 5. þm. Austurl. til allshn. þingsins þar sem niðurstöðu var lýst og beinni tillögu um afgreiðslu málsins með fullu samþykki umhvn. Og mér er ekki kunnugt um nokkurn ágreining af hálfu allshn. við þennan málatilbúnað. Ég veit ekki betur en að í allshn. hafi tekist samkomulag um það að fylgja þeirri niðurstöðu sem tókst í umhvn. um málið og þannig er málið fram komið athugasemdalaust á sameiginlegu nefndaráliti frá allshn. þingsins og liggur hér fyrir til umræðu vegna þess að allshn. hefur afgreitt það samdóma og er sammála á nefndaráliti. Svoleiðis að hér er auðvitað mjög ólíku saman að jafna um þessi þingmál. Ég vildi aðeins vekja athygli á þessu og ég veit auðvitað ekkert hvaðan hv. 5. þm. Austurl. koma þær upplýsingar að það megi búast við mjög mikilli umræðu um 20. mál sem svo góður friður hefur tekist um í tveimur þingnefndum. En ég vil auðvitað ekki leggja mat á það. Það má vel vera að það liggi þingmönnum svo mjög á hjarta varðandi 20. dagskrármálið að þeir vilji ræða það og það er að sjálfsögðu allra réttur. En þetta tel ég nauðsynlegt að taka fram vegna þess sem hér kom fram sem ályktunarorð forseta eftir hvíslingar frá hv. 5. þm. Austurl. að gera mætti ráð fyrir mikilli umræðu einnig um 20. dagskrármál.