Húsnæðisstofnun ríkisins

176. fundur
Laugardaginn 08. maí 1993, kl. 15:39:21 (8376)

     Jón Kristjánsson :
    Virðulegi forseti. Með samþykkt þessa frv. er verið að taka upp miðstýringu í húsnæðiskerfinu. Það er verið að höggva á tengsl verkalýðshreyfingarinnar við húsnæðismálin í landinu. Ég er á móti þessu, tel hér farið í ranga átt í flestum greinum í frv. og segi því nei.