Menntamálaráðherra (Ólafur G. Einarsson)
:
Hæstv. forseti. Ég skildi það svo að hér gæti ekki farið fram utandagskrárumræða um þetta mál og þess vegna mun ég ekki fara út í umræðu um vaxtamál lánasjóðsins eins og hv. þm. Guðrún Helgadóttir gaf þó tilefni til. Ég vil aðeins vísa því á bug að ég hafi svikið gefið loforð um að vextir yrðu greiddir, en ég gaf aldrei loforð um að það yrðu greiddir vextir á hvaða lánum sem væri. Eingöngu það sem menn ættu í vændum í lánum frá lánasjóðnum. Það var það sem ég lofaði og við það hefur verið staðið.
Annað held ég að ég þurfi ekki um þetta að segja. Það kom alveg skýrt fram hvaða yfirlýsingu ég gaf hér og hún hefur verið réttilega túlkuð af þeim sem hér hafa tekið til máls. Ég mun kanna þetta mál vandlega og ég vona að það hafi alveg skilist sem ég sagði þó að ég svaraði því ekki beinum orðum að ég mundi ekki staðfesta þetta. Til þess þarf ég að ræða við stjórn lánasjóðsins og ég þykist vita að á því er fullur skilningur.