Jóhannes Geir Sigurgeirsson
:
Virðulegi forseti. Hér hefur hæstv. forsrh. mælt fyrir tillögu um frestun á þingi. Sú tillaga er þannig upp sett og þannig fram borin að það hefði út af fyrir sig alveg eins verið hægt að bera hana fram að loknu jólaleyfi eða janúarleyfi og hafa um hana umræðu þá og hafa síðan bara opinn víxil þannig að það væri hægt að ganga til atkvæðagreiðslu hvenær sem væri og fresta þingi. Það sér náttúrlega hver maður að þetta . . . ( VE: Þetta verður gert næst.) Út af frammíkalli hv. 5. þm. Norðurl. e. sem ekki hafði gert sér grein fyrir eðli málsins fyrr en ég útskýrði það fyrir honum héðan úr ræðustól, þá er út af fyrir sig enginn munur á þessu, enginn eðlismunur.
Virðulegi forseti. Ég kveð mér hljóðs til þess að grennslast fyrir hvað hæstv. ríkisstjórn hugsi sér varðandi afgreiðslu mála. Nú vill það þannig til að þar sem ég taldi á því brýna nauðsyn, þá studdi ég frv. ríkisstjórnarinnar sem er 504. mál þingsins um breytingar á búvörulögum, og mér er því nokkuð annt um það hver verða afdrif þess máls. Ég vil því spyrja hæstv. forsrh., ef hann heyrir til mín, hvað hann hugsi sér varðandi framgang þess máls. Ég vil að það komi alveg skýrt fram í þessari umræðu um þingfrestunina því að við getum ekki rætt þetta undir þeim lið á næsta fundi ef hann þá verður, ég vil þá spyrja hæstv. forsrh. í þessari umræðu hvað hann hugsi sér um afgreiðslu þess máls og hvort það eigi virkilega að fara svo að hér eigi að hunsa þann vilja, sem ég hlýt að telja að sé vilji mikils meiri hluta þingmanna, að það mál fái afgreiðslu.
Hæstv. ráðherrar töluðu mikið um það þegar mjög löng umræða varð um EES-málið í vetur, sem að mínu mati var of löng því að hún hélt stjórnarliðinu frá öðrum og erfiðari málum, þá ræddi í það minnsta hæstv. viðskrh. margsinnis um það að þar væri minni hlutinn að kúga meiri hlutann í umræðum hér á Alþingi. Það var ekki rétt því að þau mál gengu til atkvæða. Ef hins vegar svo fer að 504. mál gengur ekki til atkvæða þá er engum blöðum um það að fletta miðað við það sem liggur fyrir um afstöðu hv. þm. að þar sé minni hlutinn að kúga meiri hlutann og þingræðinu fyrir borð varpað.