Framleiðsla og sala á búvörum

177. fundur
Laugardaginn 08. maí 1993, kl. 23:31:14 (8489)

     Jóhann Ársælsson (um þingsköp) :
    Virðurlegur forseti. Það liggur nú fyrir að það er ágreiningur hér í þinginu um það hvort það eigi að taka til afgreiðslu 16. dagskrármál og ég tel að það sé fráleitt að ganga þannig frá máli eins og hér er gert.
    Ég legg eindregið til að forseti beri það undir þingið hvort það eigi að afgreiða 16. mál og krefst þess að það fari fram atkvæðagreiðsla um það. Ég tel að það sé eðlileg aðferð hér í þinginu en ekki að ganga fram hjá máli með þeim hætti sem hér er gert.