Þingfrestun

177. fundur
Sunnudaginn 09. maí 1993, kl. 00:23:41 (8505)

     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
    ,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:
    Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 116. löggjafarþings, frá 7. maí 1993 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til septemberloka.
Gjört í Reykjavík, 7. maí 1993.


Vigdís Finnbogadóttir.


_____________
Davíð Oddsson.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.``

    Samkvæmt þessu umboði og með tilvísun til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því að fundum þessa Alþingis, 116. löggjafarþings, er frestað.
    Leyfi ég mér þess að óska hv. alþm. og starfsmönnum þingsins svo og landsmönnum öllum allra heilla.