Þingsetning

0. fundur
Mánudaginn 17. ágúst 1992, kl. 14:09:01 (1)


     Forseti Íslands (Vigdís Finnbogadóttir) :
    Hinn 7. ágúst 1992 var gefið út svofellt bréf:
    ,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:
    Samkvæmt lögum nr. 31 1. júní 1992, um samkomudag reglulegs Alþingis 1992 o.fl., sbr. síðari mgr. 35. gr. stjórnarskrárinnar, skal reglulegt Alþingi 1992 koma saman mánudaginn 17. ágúst 1992.
    Um leið og ég birti þetta, að tillögu forsætisráðherra, er öllum, sem setu eiga á Alþingi, boðið að koma nefndan dag til Reykjavíkur, og verður þá Alþingi sett, að lokinni guðsþjónustu í Dómkirkjunni, sem hefst kl. 13.30.
Gjört í Reykjavík, 7. ágúst 1992.

Vigdís Finnbogadóttir.

_____________
Davíð Oddsson.

Forsetabréf um setningu Alþingis mánudaginn 17. ágúst 1992.``

    Samkvæmt bréfi því sem ég nú hef lesið lýsi ég yfir því að Alþingi Íslendinga er sett. Ég óska þingmönnum öllum þeirrar gæfu að umræður hér í þingsölum megi verða farsælar og ákvarðanir gifturíkar eftir að allar hliðar mála hafa verið kannaðar.
    Ég bið yður að minnast ættjarðarinnar.
    [Þingheimur stóð upp og fjármálaráðherra, Friðrik Sophusson, mælti: ,,Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.`` Tóku þingmenn undir þessi orð með ferföldu húrrahrópi.]
    Samkvæmt 1. gr. þingskapa ber nú aldursforseta að stjórna fundi þar til kosning forseta Alþingis hefur farið fram. Ég bið aldursforseta, Matthías Bjarnason, 1. þm. Vestf., að ganga til forsetastóls.