Evrópskt efnahagssvæði

7. fundur
Þriðjudaginn 25. ágúst 1992, kl. 16:23:25 (53)

     Björn Bjarnason :
    Virðulegi forseti. Ég hef áður sett fram þá ósk --- og mér finnst ástæða til þess eftir ræðu hv. 8. þm. Reykn. til þess að bera af mér þær sakir að ég fari hér með rangt mál --- þá hef ég sett fram þá ósk til hæstv. forsrh. og eftir tilmæli einnig frá hv. 9. þm. Reykv. að það verði upplýst nákvæmlega hér í þinginu hvernig að þessari skýrslugjöf hæstv. utanrrh. í mars 1991 var staðið þannig að ekkert fari á milli mála um það og ekki sé verið að bera menn röngum sökum varðandi það atriði og menn standi hér upp og láti eins og þeir hafi aldrei verið í þeirri ríkisstjórn eða staðið að þeim verkum sem þar voru unnin.