Hjörleifur Guttormsson (andsvar) :
Ekki þarf mörgu við að bæta út af fyrir sig eftir þetta svar, en ég vek athygli á því að hæstv. forsrh. gekk ekki fram með sama hætti og hæstv. viðskrh. Hann lagði lögfræðingana að jöfnu sem reitt höfðu fram álit, en dró ekki fram einhvern hæstarétt sem hæstv. viðskrh. hefur fengið í áliti þessara fjögurra lögfræðinga sem settir voru í nefnd til að fara yfir málið.
Ég vil líka vekja athygli á því að vorið 1990 lagði ég fram skriflega í áliti til Alþingis það sjónarmið að samningurinn, eins og þá horfði um hann, stæðist ekki stjórnarskrána.
Ég vil líka bæta því við, virðulegur forseti, að það er mjög sérkennilegt ef það á að vera bannorð að fjalla um stjórnarskrána og bera fram brtt. við stjórnarskrána þegar jafnríkt tilefni liggur fyrir eins og þetta og vera að flækja það inn í efnisþætti málsins eins og það komi málinu við. (Forseti hringir.) Ég vek athygli á því, virðulegur forseti, að hæstv. viðskrh. sjálfur minnti á það að Norðmenn breyttu stjórnarskrá sinni í aðdraganda áformaðrar inngöngu í Evrópubandalagið 1971 af því tilefni. Hann kom því í rauninni sjálfur fram með gagnrök við málflutning sinn.