Stjórnarskipunarlög

8. fundur
Miðvikudaginn 26. ágúst 1992, kl. 15:12:42 (82)


     Flm. (Steingrímur Hermannsson) (andsvar) :
    Herra forseti. Ekki er við mig að deila í þessu máli, það er þá við hæstv. utanrrh. Hann segir í skýrslu sinni frá í mars 1991 að ef samið verður um þetta eftirlit þá verður það svo og svo. Þar kemur greinilega fram að verið er að byrja að taka á því máli. Ætlar hæstv. ráðherra að segja mér að ekkert hafi breyst í þeirri meðferð? Jú, eðlilega hefur mjög mikið breyst. Í mars lá alls ekki fyrir hvert yrði hlutverk þessarar eftirlitsstofnunar samkvæmt skýrslu flokksbróður hæstv. ráðherra, hæstv. utanrrh.