Stjórnarskipunarlög

9. fundur
Fimmtudaginn 27. ágúst 1992, kl. 17:46:01 (143)


     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) (um þingsköp) :
    Frú forseti. Ég get mjög vel fallist á þá tillögu um tilhögun funda um þetta mál sem hv. 8. þm. Reykn. gerði hér áðan og ég heyrði að virðulegur forseti hafði hvort sem er í hyggju og tek undir að það sé æskilegt að við lok umræðunnar verði hæstv. utanrrh. nærstaddur.