Steingrímur J. Sigfússon
(andsvar)
:
Hæstv. forseti. Ég sé það fyrir mér að hv. þm. Björn Bjarnason hann verður gæfumaður í embætti sínu sem formaður utanrmn. Hann verður farsæll og mikill mannasættir í þeim störfum ef svo heldur fram sem horfir. Ég held það hafi gerst svo til í hvert einasta sinn sem einhver stjórnarandstæðingur hefur flutt efnislega ræðu og farið yfir einhverja þætti þessa máls að hv. formaður utanrmn. hafi komið í andsvörum á eftir honum með ómerkilega útúrsnúninga. Í hverju málinu á fætur öðru. Ég fylgdist hér með umræðunni heilan dag í síðustu viku og ég held að það hafi gerst í hvert einasta skipti. Í staðinn fyrir að reyna að svara efnislega og rökræða við þingmenn kemur hv. þm. Björn Bjarnason, nýkjörinn formaður utanrmn. með láði, upp á eftir mönnum með ómerkilega útúrsnúninga af þessu tagi sem hér voru fluttir áðan. Ég segi nú fyrir mig, hæstv. forseti, líka af því að ég fór inn á þetta efni í ræðu minni, ég nenni ekki að svara þessu. Ég hef miklu meira áhuga á því að ræða um þetta eintak, hv. þm., nýkjörinn formann utanrmn. og spá í framtíðina, hversu mikill farsældarmaður hann verður í sínum störfum því hann byrjar ekki dónalega, það verður að segja.