Fíkniefnavandinn

11. fundur
Þriðjudaginn 01. september 1992, kl. 18:12:25 (192)

     Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
    Eins og hafði verið tilkynnt úr forsetastóli fer nú fram utandagskrárumræða skv. fyrri mgr. 50. gr. þingskapalaga að ósk hv. 5. þm. Suðurl. og er umræðuefnið fíkniefnavandinn. Tímamörk eru þau að enginn má tala oftar en tvisvar, málshefjandi og viðkomandi ráðherra eigi lengur en fimm mínútur í fyrra sinn og eigi lengur en tvær mínútur í síðara sinn. Aðrir þingmenn og ráðherrar eigi lengur en tvær mínútur í senn.