Evrópskt efnahagssvæði

11. fundur
Þriðjudaginn 01. september 1992, kl. 23:13:32 (217)

     Svavar Gestsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. sjútvrh. fyrir þetta hreinskilna svar og sérstaklega finnst mér athyglisvert að hann skuli áfram undirstrika stefnu Sjálfstfl., undirstrika þá stefnu sem Sjálfstfl. hafði. Hann segir að vísu að það hafi einhverjir menn komið í veg fyrir það að hann framkvæmdi þessa stefnu á sínum tíma. Hann rökstyður afstöðu sína í dag, ekki með því að stefnan sé röng, hann ítrekar stefnu Sjálfstfl., heldur með því að hann hafi lélega vatnahesta og treysti sér ekki til að snúa við í miðju fljótinu. Og þá vil ég segja við hann: Það eru fleiri hér í þingsalnum en Alþfl. Það eru fleiri vatnahestar til heldur en hæstv. utanrrh. Jón Baldvin Hannibalsson.