Frú forseti. Ég vil gera athugasemd við orðalag frú forseta hér áðan þegar hún komst þannig að orði að þetta þing væri kvatt saman til að fjalla um EES-samninginn. Eins og allir vita þá er þetta reglulegt Alþingi, 116. löggjafarþing. Það var kvatt saman svo snemma vegna þess m.a. að EES-samningurinn var til meðferðar og um það var samið að víkja frá þingsköpum um stefnuræðu forsrh. og fjárlagafrv., að það þyrfti ekki að takast til meðferðar fyrr en í október. Það var undantekningin. En ég vil leggja áherslu
á að þetta er ekki aukaþing um EES, þetta er reglulegt Alþingi og það verður að ganga hér að störfum með þinglegum og eðlilegum hætti. Mér finnst það persónulega óskynsamleg vinnubrögð að leggja ofurkapp á að ljúka 1. umr. um EES-samninginn. Utanrmn. vinnur að málinu, enda er búið að mæla fyrir því, við höfum í höndum rök hæstv. utanrrh. og ýmislegt hefur komið þar fram nú þegar í 1. umr. sem utanrmn. getur haft til hliðsjónar við starf sitt, þannig að öðru máli gildir um það mál en önnur frv. Ég tel að það mundi ekki seinka meðferð málsins neitt þó einhver önnur mál væru tekin til meðferðar jafnframt áður heldur en 1. umr. lyki. Ég vil fara fram á það við frú forseta að hún hugleiði það og heimili þessar bráðnauðsynlegu umræður utan dagskrár og hugleiði hvort ekki væri skynsamlegt að setja dagskrármál upp með öðrum hætti en hér hefur verið gert.