Evrópskt efnahagssvæði

13. fundur
Fimmtudaginn 03. september 1992, kl. 15:31:45 (274)


     Ingibjörg Pálmadóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Mér þykir afar leitt að hafa ónáðað hæstv. forsrh. ef hann telur að þetta tengist ekki málinu. En ef hann telur þetta ekki tengjast málinu þá hefur hann ekki lesið sögulegt yfirlit EFTA og EB, upplýsingablöð frá utanrrn. því þar á bls. 4, Um sjávarútvegsmál, er nákvæmlega um það getið hvað bein fjárframlög til sjávarútvegsmála þýða.