Evrópskt efnahagssvæði

13. fundur
Fimmtudaginn 03. september 1992, kl. 18:45:45 (296)

     Anna Ólafsdóttir Björnsson (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Það hefur verið kvartað hér undan því að við höfum ekki fengið svör við þeim brennandi spurningum sem hafa komið fram í umræðum. Ég vil aðeins bæta við þann lista að hæstv. sjútvrh. hefur ekki svarað mjög áríðandi, alvarlegum spurningum sem fyrir hann hafa verið lagðar og nauðsynlegt er að fá svör við, m.a. spurningum frá þeirri sem hér stendur.

    Ég vil bara halda þessu til haga og ég hef gert honum grein fyrir þessu persónulega í einkasamtali og ég vonast til að umræðunni ljúki ekki án þess að við fáum svör hans. Nógu slæmt er það að vera hér að ganga frá 1. umr. málsins án þess að hafa séð nokkurn stafkrók skjalfestan um tvíhliða samning.