Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson)
(um þingsköp)
:
Virðulegi forseti. Ég vonast til þess að hin efnislega umræða geti farið að hefjast á nýjan leik. Að sjálfsögðu mun ég taka þátt í þeirri umræðu síðar og ræða þau atriði sem fram hafa komið. Það hefur skýrlega verið tekið fram hvernig að þessum bráðabirgðalögum var staðið og það er með fyllilega lögmætum hætti.
Hv. síðasti ræðumaður bað um það fyrr hér í þingskapaumræðunni að fá að bera af sér sakir. Hann gerði það með þeim hætti að segja að það væri tæknilega rangt að segja að menn sem væru fjarstaddir hefðu greitt atkvæði með tilteknum hætti. Nú kýs hann aftur að koma að þessu máli og hefur ekki enn beðist afsökunar á því að segja ósatt um aðra þingmenn. Ég átta mig ekki alveg á því þegar hv. þm. kýs að gerast eins konar boðberi sannleikans bæði í þjóðfélaginu en einkum hér á þinginu. Eitt get ég sagt að menn væru menn að meiri ef þeir kæmu hér í ræðustól og bæðust afsökunar á því að segja ósatt um afstöðu manna, segja að þeir greiði atkvæði með tilteknum hætti og nota það síðan gegn þeim þegar öllum átti að vera ljóst að þetta var hægt að sjá af skjölum þingsins. Það sem hv. þm. áttar sig ekki á er að nú er farið að skrá það hvenær menn eru við og hverjir greiða atkvæði með tilteknum hætti. Ég hélt satt að segja að hv. þm. ætlaði sér að koma hér upp og biðjast afsökunar á þessu. Það var nú öðru nær. Það var aðeins tæknilega rangt, eins og það heitir á alþýðumáli, að ljúga upp á aðra menn.
Ég fagna því að hv. þm. hefur beðið um utandagskrárumræðu og ég vænti þess að hann sé sá maður að biðjast þá afsökunar á því sem hann hefur sagt um samþingmann sinn hér í upphafi slíkrar umræðu ef hann ekki fæst til þess hér við umræðuna.