Virðulegi forseti. Það hlýtur að vera lágmarkskrafa til fyrrv. ráðherra að þeir þoli gagnrýni. Ég vil benda hv. þm. á það að í öllum ályktunum sem hann sér frá Framsfl. mun hann sjá það að krafan um forræði á landi er sett á oddinn, þannig að hávaðamálflutningur af þessu tagi breytir þar engu um.
Ég veit það líka --- ef menn ætla að fara að vitna í samtöl við einstaka menn, ekki á opinberum vettvangi, sem ég geri nú helst aldrei --- að formaður Framsfl. var margbúinn að segja það inni í okkar
þingflokki að hann hefði farið fram á það að sú grundvallarvinna yrði unnin sem þurfti að vinna til þess að menn sæju stöðuna í málinu. En það er ágætt að það kom hér skýrt fram að af pólitískum ástæðum kaus þáv. landbrh. að láta hana ekki fara fram. Ef hann hins vegar vill fara í það að vitna í einhver tilboð einstakra stjórnmálamanna þá minni ég hann á það að formaður hans flokks bauð það fram í stjórnarmyndunarviðræðum að Jón Baldvin, oddviti viðræðnanna um samninginn um Evrópskt efnahagssvæði, yrði forsrh. (Gripið fram í.) Ég veit ekki hvernig átti að halda öllum fyrirvörum til haga undir þeirri stöðu.