Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson)
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Það er rétt hjá hv. þm. að það kann eitthvað að orka tvímælis um það hvernig menn segja í stuttu máli frá liðnum atburðum en hvað svo sem mönnum sýnist um það þá er eitt kjarni málsins og það er þetta: Á sameiginlegum samningafundi ráðherra EFTA-ríkja og Evrópubandalagsríkja var sameiginleg niðurstaða EFTA-ráðherranna allra að fallið var frá formlegum sértækum fyrirvörum og þeim komið fyrir með öðrum hætti, þ.e. breytingum á löggjöf hvers lands, almenna öryggisákvæðinu og svo sértækum fyrirvörum einstakra landa eins og Íslands að því er varðar sjávarútvegsmál. Þetta lá fyrir í lok desember 1990. Þetta var að sjálfsögðu á hvers manns vitorði. Ef grimmilegur grundvallarágreiningur hefði verið milli flokka eða einstakra ráðherra um þetta mál, hefði það að sjálfsögðu þýtt að viðkomandi hefði tekið það upp, bæði innan ríkisstjórnar og hugsanlega á Alþingi og ef hann hefði ekki viljað una því þá hefði hann sagt sig úr þeirri ríkisstjórn.